Stofnfrumur eru ósérhæfðar, frumstæðar frumur sem geta bæði fjölgað sér og sérhæfst í sérstakar frumugerðir. Í 3-5 daga fósturvísi, svokallaðri kímblöðru, mynda um 30 frumur innri frumumassa sem þroskast síðan og breytast í þær hundruð sérhæfðra frumugerða sem þarf til að mynda fullvaxta lífveru. Í sumum fullþroska vefjum, svo sem beinmerg, vöðvum og heila, finnast litlir stofnar af fullorðinsstofnfrumum sem sjá þessum vefjum fyrir varahlutum í stað frumna sem eyðast við eðlilegt slit, áverka og sjúkdóma.
Melting og öndun. Blogg 3
Við borðum og öndum frumnanna vegna
Við verðum að borða hollan mat og anda að okkur súrefni svo frumurnar geti lifað og starfað. Hver maður borðar u.þ.b 40.000 kílógrömm af matvælum á ævi sinni. Það svarar til matvæla í farmi sjö flutningabíla. Skýringin á því að við stækkum ekki endalaust og verðum á stærð við hús er sú að frumur líkamans nota næringaefnin sem látum í okkur og sundra mörgum þeirra. Á hverjum sólarhring öndum við að okkur þúsundum lítra af lofti til þess að fá nægilegt súrefni sem við þurfum lífsnauðsynlega á að halda.
Blóðrásin Blogg 4 Flutningur, varnir og hreinsun. Frumur líkamans verða stöðugt að fá næringaefnin og súrefni. Þær þurfa líka jafn mikið á því að halda og að losna við koltívoxið.
Blogg 5
Læknar geta rannsakað taugakerfið með mörgum aðferðum. Þeir geta t.d. fylgst með hvernig taugabrautirnar starfa með því að rannsaka jafnvægið og mismunandi taugaviðbrögð. Höfuðverkur er yfirleitt ekki hættulegur. Spennuhöfuðverkur kemur af streitu. Mígreni er mjög ákafur höfuðverkur sem kemur i köstum og honum fylgir oft ógleði. Þú getur fengið höfuðverk með þungu höggi á höfuðið.